Hamingja í Mass&Balanse og Afkastagetu......!!!!!

Fyrsti prófdagur var í gær.  Gríðarleg værð var yfir mönnum fyrir prófin og var þetta eins og hver annar skóladagur!Hlæjandi 

En endalaus hamingja ríkti eftir 3. próf dagsins, sem var fagið hjá Hauki, þá sérstaklega með spurningu 5 og 6 á prófinu.  Þar virtist ekkert svar vera rétt, menn reiknuðu þetta fram og til baka, í lbs. og in.  í kg. og cm.  og gengu sögur um að það hefðu einhv. reiknað þetta í km. og gr. (óstaðfest)  En allt kom fyrir ekki.  Fólk sat yfir þessum spurningum rúman helminginn af tímanum og jafnvel lengur.   Þetta setti menn nátturlega alveg útaf laginu.

 Ég veit ekki með aðra en þær tölur sem ég fékk voru: 

Mass: 1989lbs

Moment:  81136lbsin

CG: 40,79in 

 

Ég vil vera viðstaddur og sjá þegar t.d. Haukur reiknar þetta dæmi og fær einhverja útkomu sem passar við lið a),b),c) eða d).

Kveðja Sindri Már-PPL1 

                                                                                       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég held að villan hafi verið að við gleymdum að taka handfarangurskílóin frá ( 6 kg á hvern faþega) er ekki viss reiknaði það ekki út en ég held það gæti skyrt margt

Valdís (IP-tala skráð) 22.7.2006 kl. 22:12

2 identicon

Held að við áttum ekki að nota það þar sem við notuðum ekki viðmiðunarþyngdir heldur fengum þær gefnar upp.

Sindri Már (IP-tala skráð) 23.7.2006 kl. 16:21

3 identicon

Það meikar líka ekki sens því þá hækka tommurnar frá datum og svarmöguleikarnir voru báðir minna.

Golli (IP-tala skráð) 23.7.2006 kl. 23:52

4 identicon

ég er innst inni að vona að þessi hugdetta mín sé röng og við fáum öll 10 í prófinu og Hauki líði illa. Eða kannski ekki illa vorkenni okkur bara smá

Valdís (IP-tala skráð) 24.7.2006 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband